29.06.2010 Heimsókn sendinefndar frá franska þjóðþinginu til Alþingis
Forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, tekur í dag kl. 10 árdegis á móti sendinefnd frá franska þjóðþinginu og mun eiga fund með sendinefndinni. Í framhaldi af því munu frönsku þingmennirnir hitta að máli starfshóp utanríkismálanefndar um Evrópumál og síðdegis eiga þeir fund með utanríkisráðherra og efnahags- og viðskiptaráðherra.
Á morgun mun sendinefndin eiga fund með þingmannanefnd um rannsóknarskýrslu Alþingis, sjávarútvegs- og landbúnaðarnefnd og iðnaðarnefnd. Jafnframt munu frönsku þingmennirnir hitta sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra að máli, auk þess að heimsækja íslensk fyrirtæki. Í sendinefndinni eru þingmennirnir Georges Colombier, formaður sendinefndar, Jean-Yves Cousin, Annick Girardin, Jacques Desallangre, Gérard Bapt, og Lionnel Luca.
Forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, tók á móti sendinefnd frá franska þjóðþinginu í Alþingishúsinu þann 29. júní 2010 og átti með henni fund.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.