Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Hanna Birna Kristjánsdóttir
1. þm. RS, S, HBK
Hanna Birna Kristjánsdóttir

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk
06.07.2010
Ársfundur ÖSE-þingsins 6.-10. júlí

Ársfundur þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ÖSE) fer fram dagana 6.-10. júlí 2010 í Ósló.

Til umfjöllunar verða ályktanir málefnanefnda þingsins sem fjalla munu um mismunandi hliðar á þema fundarins sem er Réttarríkið og baráttan gegn alþjóðlegri glæpastarfsemi og spillingu. Auk þess hafa einstaka þingmenn lagt fram 35 ályktanir til samþykktar á fundinum. Þar á meðal er að finna ályktun sem lögð er fram af þingmönnum Íslands í tilefni af 10 ára afmæli ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna um konur, frið og öryggi.
Fundinn sækja fyrir hönd Íslandsdeildar ÖSE-þingsins Róbert Marshall formaður og Pétur H. Blöndal, sérlegur fulltrúi forseta ÖSE-þingsins í fjárreiðum ÖSE, sem mun leggja fram skýrslu á fundinum.
Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu ÖSE:
Heimasíða ÖSE auk þess sem beinar útsendingar verða frá fundinum frá Stórþinginu:
Bein útsending frá fundinum í Stórþinginu
.


Fundur í utanríkismálanefnd opinn fréttamönnum
Utanríkismálanefnd hélt fund með utanríkismálaráðherra þann 18. október 2011. Fundurinn var opinn fréttamönnum. Fundurinn var sá fyrsti í 83 ára sögu utanríkismálanefndar sem opinn er fréttamönnum og jafnframt sá fyrsti með því lagi sem haldinn er í þingnefnd (gestafundur), skv. nýju ákvæði 2. mgr. 19. gr.laga um þingsköp Alþingis.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.