Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Ásmundur Einar Daðason
3. þm. NV, F, ÁsmD
Ásmundur Einar Daðason

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk
21.07.2010
Ávarp forseta Alþingis á 3. heimsráðstefnu þingforseta á vegum Alþjóðaþingmannasambandsins í Genf

Ásta R. Jóhannesdóttir sat 3. ráðstefnu þingforseta aðildarríkja Alþjóðaþingmannasambandsins sem haldin var í Genf í Sviss 19.-21. júlí. Í ávarpi sínu þar lagði hún áherslu á gott samstarf sambandsins við Sameinuðu þjóðirnar og mikilvægi eflingar lýðræðis með aukinni þátttöku kvenna í stjórnmálum um allan heim. Í lokayfirlýsingu ráðstefnunnar var mikilvægi aukins jafnréttis kynjanna áréttað og hvatt til að efla verulega átak í að auka hlutdeild kvenna á þjóðþingum allra aðildarríkja sambandsins.

Forseti Alþingis heimsótti fastanefnd Íslands sem annast samskipti við alþjóðastofnanir í Genf og kynnti sér starfsemi hennar. Að því loknu fór hún til aðalstöðva EFTA. Þar átti hún fund með Kåre Bryn, aðalframkvæmdastjóra EFTA, og Guðmundi Einarssyni skrifstofustjóra, ásamt Kristni F. Árnasyni sendiherra, fastafulltrúa Íslands í Genf. Forseti Alþingis sótti sérstakan fund með þingforsetum evrópskra smáríkja í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í Genf.

Heimsráðstefna þingforseta er haldin á 5 ára fresti og er öllum þingforsetum aðildarríkjanna 155 boðið ásamt þingforsetum þeirra níu ríkja sem eiga aðild að Alþjóðaþingmannasambandinu. Að auki sækja ráðstefnuna fulltrúar fjölmargra stofnana á vegum Sameinuðu þjóðanna og annarra alþjóðastofnana.

Hér má lesa ávarp forseta Alþingis.

Forseti Alþingis á 3. þingforsetafundi IPU
Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sótti 3. heimsráðstefnu þingforseta sem haldin var á vegum Alþjóðaþingmannasambandsins í Genf í Sviss, dagana 19.-21. júlí 2010. Ráðstefnuna sóttu þingforsetar 136 ríkja.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.