Undirbúningsnefnd stjórnlagaþings hefur ráðið Þorstein Fr. Sigurðsson rekstrarhagfræðing sem framkvæmdastjóra undirbúningsnefndar stjórnlagaþings. Þorsteinn hefur þegar hafið störf. Þorsteinn var í 16 ár framkvæmdastjóri Bandalags íslenskra skáta. Þorsteinn hefur tvöfalda B.A. gráðu í viðskiptafræðum frá Memphis-háskóla í Memphis í Bandaríkjunum, MIM/MBA gráðu frá Thunderbird – School of Global Management í Phoenix í Bandaríkjunm og meistaragráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík.
Framkvæmdastjóri undirbúningsnefndar stjórnlagaþings starfar í umboði nefndarinnar að þeim verkefnum sem nefndinni eru falin. Nefndinni er ætlað að undirbúa stofnun og starfsemi stjórnlagaþingsins, sem kemur saman 15. febrúar 2011, ásamt því að vinna að undirbúningi fyrir þjóðfund sem haldinn verður til undirbúnings fyrir stjórnlagaþingið. Þá er undirbúningsnefndinni ætlað að undirbúa kynningu á starfsemi stjórnlagaþingsins og setja upp vefsíðu þess, útvega húsnæði og undirbúa ráðningu starfsmanna
Íslenski fáninn var settur upp í þingsal árið 2007. Bak við stól forseta er gengið út á svalirnar.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.