Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Valgerður Bjarnadóttir
11. þm. RN, Sf, VBj
Valgerður Bjarnadóttir

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk
19.08.2010
Fundur forseta þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja haldinn 19. ágúst í Reykjavík

Árlegur fundur forseta þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja var að þessu sinni haldinn í Reykjavík, fimmtudaginn 19. ágúst. Á fundinum ræddu forsetar sameiginleg verkefni þjóðþinganna og notkun upplýsingatækni við þingstörf. Gerð var grein fyrir því sem er efst á baugi í stjórnmálum á Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum. Einnig ræddu forsetarnir þátttöku þjóðþinga í alþjóðlegu þingmannasamstarfi. Páll Hreinsson hæstaréttardómari gerði grein fyrir störfum rannsóknarnefndar Alþingis og hvernig staðið var að rannsókn á aðdraganda og orsökum falls íslensku bankanna.

Norrænir og baltneskir þingforsetar
Norrænir og baltneskir þingforsetar áttu fund í Reykjavík 19. ágúst 2010. Talið frá vinstri: Sauli Niinistö, forseti finnska þingsins, Irena Degutiene, forseti þingsins í Litháen, Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, Ene Ergma, forseti eistneska þingsins, Per Westerberg, forseti sænska þingsins, og
Gundars Daudze, forseti þingsins í Lettlandi.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.