20.08.2010 Fundur vestnorrænna þingforseta í Tasiilaq á Grænlandi 21. ágúst
Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sækir fund vestnorrænna þingforseta í Tasiilaq á Grænlandi, í boði Josefs Motzfeldts, forseta grænlenska þingsins. Fundinn sækir einnig Hergeir Nielsen, forseti færeyska Lögþingsins.
Á fundinum munu þingforsetar m.a. ræða samstarf á vettvangi Vestnorræna ráðsins, samvinnu í björgunaraðgerðum á sjó og landi, auk nýtingar á auðlindum sjávar.
Fundur vestnorrænna þingforseta fór fram í Tasiilaq á Grænlandi 21. ágúst 2010. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Hergeir Nielsen, forseti færeyska Lögþingsins, Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, og Josef Motzfeldt, forseti grænlenska þingsins.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.