Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Illugi Gunnarsson
1. þm. RN, S, IllG
Illugi Gunnarsson

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk
05.10.2010
Stofnun sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og Evrópusambandsins

Stofnfundur sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og Evrópusambandsins fer fram þriðjudaginn 5. október í Þjóðmenningarhúsinu. Við opnun fundarins munu forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir og formenn nefndarinnar, Evrópuþingmaðurinn Pat the Cope Gallagher og Árni Þór Sigurðsson alþingismaður flytja ávörp.

Á dagskrá stofnfundar sameiginlegu þingmannanefndarinnar eru samskipti Íslands og ESB þar sem Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra, Timo Summa sendiherra og fulltrúi framkvæmdastjórnar ESB og Christian Monnoyer fulltrúi ráðherraráðs ESB flytja ávörp. Aðrir dagskrárliðir eru m.a. staða efnahagsmála á Íslandi, sjávarútvegsstefnur Íslands og ESB, norðurslóðamál og orkumál. Í lok fundar mun nefndin afgreiða tilmæli um aðildarviðræður Íslands og Evrópusambandsins.

Sameiginlegri þingmannanefnd, sem skipuð er þingmönnum Evrópuþingsins og þjóðþings umsóknarríkis, er ætíð komið á fót í aðildarviðræðuferli. Hlutverk sameiginlegu þingmannanefndarinnar verður að fylgjast með samskiptum Íslands og Evrópusambandsins og þá sérstaklega umsóknar- og aðildarviðræðuferlinu. Hin sameiginlega þingmannanefnd Íslands og Evrópusambandsins samanstendur af 18 þingmönnum, níu frá Alþingi og níu frá Evrópuþinginu.

Þátttakendur á stofnfundi sameiginlegrar þingmannanefndar
Íslands og Evrópusambandsins

Alþingismenn:
Árni Þór Sigurðsson, formaður
Bjarni Benediktsson,
Jónína Rós Guðmundsdóttir,
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson,
Valgerður Bjarnadóttir,
Þorgerður K. Gunnarsdóttir,
Þórunn Sveinbjarnardóttir,
Álfheiður Ingadóttir og
Margrét Tryggvadóttir.

Evrópuþingmenn:
Pat the Cope GALLAGHER,
Petru LUHAN,
Indrek TARAND,
Søren Bo SØNDERGAARD,
Francesco Enrico SPERONI og
Cristian Dan PREDA.



Fréttamannafundur um rannsóknarnefndir Alþingis
Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, kynnti starfsemi tveggja rannsóknarnefnda Alþingis, sem eru að taka til starfa, ásamt formönnum þeirra þann 27. september 2011. Formaður nefndar um rannsókn á Íbúðalánasjóði er Sigurður Hallur Stefánsson, fv. héraðsdómari og formaður nefndar um rannsókn á orsökum og falli sparisjóðanna er Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari.



Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.