03.11.2010 Dagskrá Norðurlandaráðsþings fimmtudaginn 4. nóvember 2010
Bein útsending verður frá Norðurlandaráðsþingi á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone og á vef Alþingis. Dagskrá þingsins er á vef Norðurlandaráðs og jafnframt eru skjöl þingsins aðgengileg á vef Norðurlandaráðs.
Kl. 10.00 – 12.30. Umhverfi og auðlindir á Norðurlöndum: Skýrsla: Staða umhverfismerkisins Svansins. Nefndartillaga um norrænt skilagjald. Fulltrúatilaga um norræna landbúnaðar- og skógræktarstefnu. Nefndartillaga um nýjar áætlanir í norrænu loftslagssamstarfi. Nefndartillaga um eftirfylgni af Copenhagen Accord. Nefndartillaga um norræna framleiðslu endurnýjanlegrar orku. Þingmannatillaga um sameiginlega norræna stefnu gegn útbreiðslu þvottabjarna. Rannsóknir, menntun og atvinnustefna á Norðurlöndum: Ráðherranefndartillaga um stefnu á sviði menntunar og rannsókna 2011–13. – Þekking í þágu græns hagvaxtar og velferðar. Skýrsla um samstarfsáætlun um nýsköpunar- og atvinnustefnu 2011–13. Skýrsla um þróun norræna rannsóknasamstarfsins. Nefndartillaga um sköpun, nýsköpun og frumkvöðlastarfsemi í menntun. Nefndartillaga um atvinnulíf ungs fólks og hæfni. Félags-, heilbrigðis- og jafnréttismál: Nefndartillaga um hvernig skapa megi góð lífsskilyrði fyrir aldraða á Norðurlöndum. Nefnartillaga um að semja sameiginlega norræna aðgerðaáætlun vegna sjaldgæfra sjúkdóma í samræmi við tilmæli ESB. Nefndartillaga um sameiginlega norræna rafræna skrá yfir lækna, tannlækna, hjúkrunarfræðinga og annað löggilt fagfólk á heilbrigðissviði á Norðurlöndum og sjálfstjórnarsvæðunum. Nefndartillaga um norræna nýsköpunarmiðstöð lýðheilsu við Norræna lýðheilsuháskólann (NHV) og norrænt stórátak, Öndvegisrannsóknir II – á sviði velferðar-, heilbrigðis- og félagsmála. Þingmannatillaga um norrænar aðgerðir um gjaldtöku vegna fjármálafærslna. Nefndartillaga um aðgerðir vegna framleiðslu heilsusamlegra matvæla á Norðurlöndum.
Kl. 12.30–14.00. Skýrslur um norrænt samstarf: Skýrsla Norðurlandaráðs fyrir árið 2009. Starfsemi Norrænu ráðherranefndarinnar – ársreikningur fyrir 2009. Skýrsla eftirlitsnefndarinnar um starfsemina 2010. Skýrsla um endurskoðun á starfsemi Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar árið 2009. Skýrsla um endurskoðun reikninga Norðurlandaráðs fyrir árið 2009. Skýrsla til Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar um endurskoðun á starfsemi Norræna menningarsjóðsins árið 2009. Afgreiðsla tilmæla og ákvarðana um innri málefni Kosningar: Kosning fulltrúa í forsætisnefnd Norðurlandaráðs, kosning forseta Norðurlandaráðs, kosning varaforseta Norðurlandaráðs, kosning fulltrúa í aðrar nefndir Norðurlandaráðs og eftirlitsnefnd, kosning formanna og varaformanna í nefndir Norðurlandaráðs og eftirlitsnefnd, kosning fulltrúa í kosninganefnd Norðurlandaráðs, kosning fulltrúa í stjórn Norræna menningarsjóðsins. Ræða nýkjörins forseta Ákvörðun tekin um dagsetningu og staðsetningu næsta þings Þingslit
Upprunalegir litir og kalkskreytingar í lofti prýða þingsalinn.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.