29.11.2010 Opinn fundur allsherjarnefndar 29. nóvember um skýrslu umboðsmanns Alþingis vegna starfsársins 2009
Opinn fundur var haldinn í allsherjarnefnd Alþingis í morgun. Rætt var um skýrslu umboðsmanns Alþingis vegna starfsársins 2009.
Gestir fundarins voru Tryggvi Gunnarsson, umboðsmaður Alþingis, og Róbert R. Spanó prófessor, forseti lagadeildar Háskóla Íslands.
Fundurinn var haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis að Austurstræti 8-10 og var opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi.
Fundurinn var sendur beint út á vef Alþingis og eru nú aðgengilegar hljóð- og myndupptökur á vefsíðu allsherjarnefndar. Fundurinn var jafnframt sendur út á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.
Fundurinn var haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis, sjá reglur.
Alþingishúsið var opið almenningi 17. júní 2011 í tilefni af 100 ára afmæli Háskóla Íslands einnig var 200 ára afmælis Jóns Sigurðssonar forseta minnst.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.