Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Ragnheiður E. Árnadóttir
2. þm. SU, S, REÁ
Ragnheiður E. Árnadóttir

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk
01.03.2011
Forseti þýska Sambandsþingsins, dr. Norbert Lammert, í opinberri heimsókn á Íslandi 28. febrúar til 3. mars 2011

Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, átti í dag, 1. mars, fund með dr. Norbert Lammert, forseta þýska Sambandsþingsins, sem er í opinberri heimsókn á Íslandi í boði forseta Alþingis.

Forsetarnir ræddu samskipti þjóðanna og þau mál sem eru efst á baugi á Íslandi og í Þýskalandi. Forseti Alþingis lagði áherslu á mikilvægi þeirra vinabanda sem tengt hafa þjóðirnar um árabil og traust samskipti milli þjóðþinganna. Auk þess þakkaði hún stuðning þýska þingsins við aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu.

Forseti þýska Sambandsþingsins fundaði einnig með þingmönnum í starfshópi utanríkismálanefndar um Evrópumál. Hann hefur jafnframt átt fundi með forsætisráðherra, fjármálaráðherra og utanríkisráðherra í dag, ásamt því að hitta forsvarsmann verkefnisins Sögueyjan Ísland, sem hefur veg og vanda af þátttöku Íslands í bókasýningunni í Frankfurt haustið 2011. Jafnframt mun forseti þýska Sambandsþingsins hitta formenn þingflokka að máli.


Opinber  heimsókn forseta þýska Sambandsþingsins
Frá fundi Ástu R. Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, með dr. Norbert Lammert, forseta þýska Sambandsþingins, í Alþingishúsinu 1. mars 2011.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.