03.03.2011 Opinn fundur í umhverfisnefnd um Vatnajökul 4. mars
Opinn fundur verður haldinn í umhverfisnefnd um málefni Vatnajökulsþjóðgarðs föstudaginn 4. mars kl. 16.00. Einkum verður fjallað um nýsamþykkta verndaráætlun fyrir þjóðgarðinn. Gestir fundarins verða Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra, Glóey Finnsdóttir lögfræðingur í umhverfisráðuneyti, Hugi Ólafsson skrifstofustjóri í umhverfisráðuneyti og Kristveig Sigurðardóttir formaður stjórnar Vatnjökulsþjóðgarðs.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.
Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis, sjá reglur.
Forseti Alþingis, flutti ávarp á hátíðarsamkomu sem var haldin 17. júní 2011 í tilefni þess að 100 ár voru liðin frá stofnun Háskóla Íslands í Alþingishúsinu.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.