Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Guðlaugur Þór Þórðarson
7. þm. RS, S, GÞÞ
Guðlaugur Þór Þórðarson

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk
04.03.2011
Upptaka af opnum nefndarfundi um skýrslu peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands 4. mars

Opinn fundur var haldinn föstudaginn 4. mars í þremur fastanefndum Alþingis, efnahags- og skattanefnd, fjárlaganefnd og viðskiptanefnd, um skýrslu peningastefnunefndar Seðlabankans. Gestir fundarins voru Már Guðmundsson seðlabankastjóri, Þórarinn G. Pétursson, aðalhagfræðingur Seðlabankans, og Rannveig Sigurðardóttir, ritari peningastefnunefndar.


Fundurinn var haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis að Austurstræti 8-10 og var opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi.

Fundurinn var sendur beint út á vef Alþingis og eru nú aðgengilegar hljóð- og myndupptökur á vefsíðu efnahags- og skattanefndar. Fundurinn var jafnframt sendur út á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.

Fundurinn var haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis, sjá reglur.

Lög um Seðlabanka Íslands kveða svo á að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands skuli gefa Alþingi skýrslu um störf sín tvisvar á ári og að ræða eigi efni skýrslunnar á sameiginlegum fundi efnahags- og skattanefndar, fjárlaganefndar og viðskiptanefndar. Skýrsla peningastefnunefndar desember 2010.


Opinn nefndarfundur um skýrslu peningastefnunefndar
Opinn nefndarfundur um skýrslu peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands var haldinn í þremur fastanefndum Alþingis, efnahags- og skattanefnd, fjárlaganefnd og viðskiptanefnd, föstudaginn 4. mars 2011.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.