04.03.2011 Upptaka af opnum fundi í umhverfisnefnd með umhverfisráðherra um Vatnajökulsþjóðgarð 4. mars
Opinn fundur var haldinn í umhverfisnefnd um málefni Vatnajökulsþjóðgarðs föstudaginn 4. mars. Fjallað var um nýsamþykkta verndaráætlun fyrir þjóðgarðinn. Gestir fundarins voru Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra, Glóey Finnsdóttir, lögfræðingur í umhverfisráðuneyti, Hugi Ólafsson, skrifstofustjóri í umhverfisráðuneyti og Kristveig Sigurðardóttir, formaður stjórnar Vatnjökulsþjóðgarðs. Fundurinn var haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis að Austurstræti 8-10 og var opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi.
Fundurinn var sendur beint út á vef Alþingis og eru nú aðgengilegar hljóð- og myndupptökur á vefsíðu umhverfisnefndar. Fundurinn var jafnframt sendur út á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.
Fundurinn var haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis, sjá reglur.
Opinn fundur var haldinn í umhverfisnefnd með umhverfisráðherra um málefni Vatnajökulsþjóðgarðs föstudaginn 4. mars 2011.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.