Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Óttarr Ólafur Proppé
11. þm. RS, Bf, ÓP
Óttarr Ólafur Proppé

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk
27.04.2011
Fundur sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og Evrópusambandsins

Annar fundur sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og Evrópusambandsins fór fram miðvikudaginn 27. apríl í Þjóðmenningarhúsinu og í Hellisheiðarvirkjun.

Fundinum var stýrt af írska Evrópuþingmanninum Pat the Cope Gallagher (European Parliament, ALDE group) og Árna Þór Sigurðssyni, þingmanni Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs.

Á fyrri hluta fundarins var rætt um samskipti Íslands og ESB, í ljósi yfirstandandi umsóknar- og aðildarviðræðuferlis. Bálint Ódor, fulltrúi ráðherraráðs ESB, Timo Summa, sendiherra og fulltrúi framkvæmdastjórnar ESB, og Stefán Haukur Jóhannesson, aðalsamningamaður Íslands, fluttu ávörp.

Aðrir dagskrárliðir voru m.a. fiskveiðar, yfirlit yfir landbúnaðarstefnur Íslands og ESB og viðbrögð við yfirstandandi fjármálakreppu á Íslandi og í ESB.

Seinni hluti fundarins var haldinn í Hellisheiðarvirkjun þar sem sérfræðingar á sviði orkumála héldu erindi og rætt var um endurnýjanlega orku á Íslandi og í ESB.

Þriðji fundur sameiginlegu þingmannanefndarinnar verður haldinn í Evrópuþinginu í Brussel í byrjun október.

Þátttakendur frá Alþingi:
Árni Þór Sigurðsson, formaður, þingflokki Vinstri hreyfingarinnar - græns framboð.

Valgerður Bjarnadóttir, varaformaður, þingflokki Samfylkingarinnar.

Jónína Rós Guðmundsdóttir, þingflokki Samfylkingarinnar

Björgvin G. Sigurðsson, þingflokki Samfylkingarinnar

Birgitta Jónsdóttir, þingflokki Hreyfingarinnar

Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, þingflokki Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs.

Ólöf Nordal, þingflokki Sjálfstæðisflokksins

Guðlaugur Þór Þórðarson, þingflokki Sjálfstæðisflokksins.


Þátttakendur frá Evrópuþinginu:
Pat the Cope Gallagher, formaður, ALDE, Írlandi.

Paul Rübig, EPP, Austurríki.

Indrek Tarand, Greens/EFA, Eistlandi.

Søren Bo Søndergaard, GUE/NGL, Danmörku.

Cristian Dan Preda, EPP, Rúmeníu.





Fundur sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og Evrópusambandsins
Annar fundur sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og Evrópusambandsins var haldinn 27. apríl 2011. Frá vinstri: Stígur Stefánsson, ritari nefndarinnar, Árni Þór Sigurðsson og Pat the Cope Gallagher, formenn nefndarinnar, og Michal Malovec ritari nefndarinnar.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.