04.05.2011 Alþingi gerir samning við Vísindavefinn um uppsetningu og rekstur Evrópuvefs
Alþingi og Vísindavefur Háskóla Íslands undirrituðu í dag samning um að Vísindavefurinn tæki að sér að sjá um uppsetningu og rekstur upplýsingavefs um Evrópusambandið og Evrópumál, en í fjárlögum ársins 2011 er framlag til að koma slíkum vef á fót í tilefni af aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu.
Tilgangur vefsins er að veita hlutlægar, málefnalegar og trúverðugar upplýsingar um Evrópusambandið. Uppbygging vefsins og framsetning efnis verður með svipuðu sniði og á Vísindavefnum og byggir á þeirri reynslu sem þar hefur fengist.
Gert er ráð fyrir að Evrópuvefurinn verði opnaður 23. júní 2011.
Forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir flytur ávarp á hátíðarsamkomu sem haldin var þann 8. júlí 2012.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.