06.05.2011 Úthlutun fræðimannsíbúðar Húss Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn 2011-2012
Úthlutunarnefnd fræðimannsíbúðar samkvæmt reglum um Hús Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn hefur lokið störfum og úthlutað íbúðinni frá ágústlokum 2011 til ágústloka 2012.
Í nefndinni eiga sæti Anna Agnarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, formaður, Ágúst Einarsson, prófessor við Háskólann á Bifröst, og Kristinn Ólason, rektor Skálholtsskóla. Ritari nefndarinnar er Jörundur Kristjánsson, alþjóðaritari á skrifstofu forseta Alþingis. Alls barst nefndinni að þessu sinni 41 umsókn.
Tíu fræðimenn fá afnot af íbúðinni, sem hér segir:
Árni Heimir Ingólfsson til að vinna verkefni um tónlist í íslenskum handritum í Kaupmannahöfn, og tónlistartengsl Íslands og Danmerkur á 17. öld.
Birna Arnbjörnsdóttir til að vinna verkefni um aðlögun innflytjenda og menntun tungumálakennara í fullorðinsfræðslu.
Guðbjörg Vilhjálmsdóttir til að vinna verkefnið Habitus og framtíðarstörf.
Guðný Björk Eydal til að vinna verkefni um feðrahlutverk á Norðurlöndum, norræna fjölskyldustefnu og framkvæmd félagsþjónustu í Kaupmannahöfn.
Katrín Ólafsdóttir til að vinna verkefnið Virkar vinnumarkaðsaðgerðir: Hvað geta Íslendingar lært af Dönum?.
Kristján Sveinsson til að vinna verkefni um sjómælingar Dana við Ísland 1784-1914, útgáfu sjókorta og leiðsögubóka.
Ólafur Ásgeirsson til að vinna að afritun verslunarbóka frá 18. öld.
Ragnhildur Helgadóttir til að vinna verkefni um stjórnskipun í mótun: áhrif stjórnskipunarréttar ESB á danska stjórnskipun.
Sverrir Tómasson til að vinna verkefni um útgáfur Njáls sögu, aðallega á 19. öld.
Torfi H. Tulinius til að vinna verkefni um Íslendingasögur sem listaverk frá Sturlungaöld.
Fræðimannsíbúðin í Kaupmannahöfn, tengd nafni Jóns Sigurðssonar, er skammt frá Jónshúsi, í Sankt Pauls Gade 70. Fræðimaður hefur vinnustofu í Jónshúsi.
Á 1. hæð í Alþingishúsinu eru fundarherbergi þriggja þingflokka, skrifstofa forseta Alþingis og fundarherbergi forsætisnefndar.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.