11.05.2011 Varaforseti rússnesku Dúmunnar, Lyubov K. Sliska, í opinberri heimsókn á Íslandi 11.-14. maí 2011
Varaforseti rússnesku Dúmunnar, Lyubov K. Sliska, er í opinberri heimsókn á Íslandi dagana 11. til 14. maí í boði Ástu R. Jóhannesdóttur, forseta Alþingis. Með Slisku í för er sendinefnd fjögurra rússneskra þingmanna.
Sliska og þingmannasendinefndin mun eiga fund með forseta Alþingis, ásamt fulltrúum þingflokka og formanni Íslandsdeildar Norðurlandaráðs. Þá mun hún einnig funda með fulltrúum utanríkismálanefndar Alþingis. Jafnframt mun Sliska og sendinefndin frá rússnesku Dúmunni hitta að máli forseta Íslands og utanríkisráðherra.
Alþingisgarðurinn og suðurhlið þinghússins. Hafist var handa um framkvæmdir í garðinum árið 1893. Kringlan var byggð við húsið 1908.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.