16.05.2011 Forseti Alþingis í opinberri heimsókn í Noregi 16.-19. maí
Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, verður í opinberri heimsókn í Noregi dagana 16.-19. maí 2011 í boði Dag Terje Andersens, forseta norska Stórþingsins. Með forseta Alþingis í för verða þingmennirnir Álfheiður Ingadóttir og Kristján Þór Júlíusson.
Forseti Alþingis mun í heimsókninni eiga fundi með forseta norska Stórþingsins, utanríkis- og varnarmálanefnd þingsins, fulltrúum Stórþingsins í Norðurlandaráði og Jonasi Gahr Støre, utanríkisráðherra Noregs. Þá mun Ásta R. Jóhannesdóttir fara á fund Haralds Noregskonungs og vera viðstödd hátíðardagskrá í tilefni þjóðhátíðardags Noregs á 17. maí í Ósló.
Forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, og Dag Terje Andersen, forseti norska Stórþingsins, í sjónvarpsviðtali fyrir utan norska þingið á þjóðhátíðardaginn, 17. maí.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.