10.06.2011 Breytt fyrirkomulag úthlutana á safnliðum í fjárlögum
Á árinu 2012 verða gerðar breytingar á úthlutun styrkja til félaga, samtaka og einstaklinga á þann veg að Alþingi ákvarðar einungis umfang einstakra málaflokka en lætur aðra aðila, svo sem lögbundna sjóði, menningarráð landshluta, ráðuneyti og fleiri um úthlutun úr þeim, allt eftir því sem við á. Öllum umsóknum um styrki verður fundinn farvegur þannig að taka megi afstöðu til þeirra á grundvelli fyrir fram ákveðinna viðmiða.
Þetta þýðir að fjárlaganefnd Alþingis mun ekki veita viðtöku erindum frá félögum, samtökum eða einstaklingum eins og verið hefur. Í september næstkomandi verður sett á vef Alþingis nánari útskýring á þessum breytingum og hvert aðilar eigi að snúa sér með styrkbeiðnir sínar.
Íslenski fáninn var settur upp í þingsal árið 2007. Bak við stól forseta er gengið út á svalirnar.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.