14.06.2011 Minningarfundur á Alþingi 15. júní 2011 í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli Jóns Sigurðssonar forseta
Minningarfundur í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli Jóns Sigurðssonar forseta verður haldinn á Alþingi í dag, miðvikudaginn 15. júní 2011, kl. 11.05. Fyrir fundinum liggur tillaga til þingsályktunar um prófessorsstöðu tengda nafni Jóns Sigurðssonar forseta. Fundinum verður útvarpað og sjónvarpað. Tillaga til þingsályktunar um prófessorsstöðu tengda nafni Jóns Sigurðssonar forseta er lögð fram af forsætisnefnd Alþingis í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli Jóns Sigurðssonar forseta 17. júní 2011.
Fyrri umræða um þingsályktunartillöguna fór fram þann 11. júní en síðari umræða og atkvæðagreiðsla fer fram á minningarfundinum 15. júní. Forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, setur fundinn og flytur stutt ávarp. Einn ræðumaður frá hverjum þingflokki talar í umræðunni og að lokinni atkvæðagreiðslu flytur forsætisráðherra stutt ávarp.
Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir að prófessorsstaðan verði stofnuð við Háskóla Íslands en starfsskyldur þess sem henni gegnir verði m.a. við Rannsóknasetur Háskóla Íslands á Vestfjörðum og í samstarfi við Háskólasetur Vestfjarða. Gert er ráð fyrir að staðan verði auglýst og skipað í hana á fimm ára fresti eftir almennum reglum um prófessora og heimilt verði að endurnýja skipunartímann einu sinni.
Lagt er til að prófessorinn hafi rannsókna- og kennsluskyldu í sínu fagi. Eitt lykilverkefna hans verði að halda árlega ráðstefnur og námskeið í sumarháskóla á Hrafnseyri með innlendum og erlendum kennurum og fyrirlesurum. Við skipun í prófessorsembættið verði höfð hliðsjón af því hvernig áætlun umsækjenda um rannsóknarstarf og kennslu tengist lífi, starfi og arfleifð Jóns Sigurðssonar og efli þekkingu á sjálfstæðisbaráttu þjóðarinnar. Samkvæmt tillögunni er gert ráð fyrir að prófessorinn geti tekið til starfa frá og með næstu áramótum.
Ferill málsins mál 891 og þingsályktunartillagan á þingskjali 1787.
Upplýsingar um viðburði á 200 ára minningarafmæli Jóns Sigurðssonar er að finna á vefsíðunni jonsigurdsson.is
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.