15.06.2011 Ræður Jóns Sigurðssonar birtar á vef Alþingis í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli hans
Ræður Jóns Sigurðssonar birtar á vef Alþingis í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli hans
Forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, greindi frá því í ræðu sinni á minningarfundi um Jón Sigurðsson að í tilefni af 200 ára fæðingarafmæli Jóns Sigurðssonar hafi ræður hans á Alþingi verið skannaðar inn. Hægt að lesa þær á althingi.is/jon_sigurdsson. Ræðum Jóns hefur verið raðað annars vegar eftir þingum og hins vegar eftir málum og leitast við merkja allar ræður ákveðnu þingmáli. Jón flutti fjöldamargar ræður sem forseti þingsins og eru þær flestar um fundarstjórn. Af málefnum sem Jón barðist fyrir á Alþingi má nefna fullveldi Íslands, kröfu um verslunarfrelsi, úrbætur í menntamálum og kröfu um frjálslegri kosningarrétt og kjörgengi. Á þessari vefsíðu eru nú allar ræður sem hann flutti á Alþingi.
Á fyrsta þingi hins endurreista Alþingis árið 1845 tók Jón strax forystu meðal almennra þingmanna. Hann var kosinn í fjölmargar nefndir og var framsögumaður margra þeirra. Jón Sigurðsson sat á 13 þingum auk þjóðfundarins. Hann var tíu sinnum kjörinn forseti þingsins og hafði því mikil áhrif á þingstörfin og átti stóran þátt í að móta þau á fyrstu árum hins endurreista Alþingis.
Upplýsingar um viðburði á 200 ára minningarafmæli Jóns Sigurðssonar er að finna á vefsíðunni jonsigurdsson.is
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.