16.06.2011 Hátíðarsamkoma í Alþingishúsinu í tilefni af 100 ára afmæli Háskóla Íslands - 200 ára afmælis Jóns Sigurðssonar minnst
Hátíðarsamkoma verður haldin í Alþingishúsinu 17. júní í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá stofnun Háskóla Íslands í þinghúsinu.
Ávörp flytja forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, starfandi menntamálaráðaherra, Svandís Svavarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, Kristín Ingólfsdóttir og formaður Stúdentaráðs, Lilja Dögg Jónsdóttir. Háskólakórinn syngur við athöfnina.
Að lokinni athöfn í þingsal afhjúpar rektor Háskóla Íslands veggmynd í forsal á 1. hæð til minningar um starfsemi háskólans í þinghúsinu, en þar var háskólinn til húsa frá 1911 til 1940. Forseti Alþingis mun færa Háskóla Íslands gjöf frá Alþingi.
Forseti Alþingis opnar einnig sýningu um þingstörf Jóns Sigurðssonar forseta og starfsemi háskólans í Alþingishúsinu. Sýningin verður eingöngu opin 17. júní og verður Alþingishúsið opið almenningi frá kl. 14 til 17.30.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.