Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
1. þm. NA, F, SDG
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk
19.06.2011
Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, hlýtur Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta árið 2011

Hátíð Jóns Sigurðssonar var haldin í Jónshúsi í Kaupmannhöfn í dag, kvenréttindadaginn 19. júní 2011. Markmiðið með hátíðinni er að heiðra minningu Jóns Sigurðssonar og halda á loft verkum hans og hugsjónum. Stjórn húss Jóns Sigurðssonar hefur umsjón með hátíðinni með fulltingi forseta Alþingis og forsætisnefndar.

Jóhanna Sigurðardóttir flutti hátíðarræðu við þetta tilefni og Sólveig Pétursdóttir, formaður undirbúningsnefndar afmælis Jóns Sigurðssonar, kynnti margmiðlunarsýningu sem gerð er í tilefni 200 ára afmælisársins

Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, afhenti Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta, en Alþingi veitir verðlaunin í minningu starfa Jóns forseta í þágu Íslands og Íslendinga. Þau hlýtur hverju sinni einstaklingur sem hefur unnið verk er tengjast hugsjónum og störfum Jóns Sigurðssonar. Þessi verk geta verið á sviði fræðistarfa, viðskipta eða mennta- og menningarmála.

Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta árið 2011 hlýtur frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands. Í forsetatíð sinni efldi hún og styrkti vináttu milli Íslands og Danmerkur
sem ötull talsmaður menningarsamskipta þjóðanna. Forusta hennar í stjórn sjóðsins Den Nordatlantiske Brygge tryggði endurbyggingu „Bryggjunnar“ þar sem síðan hefur verið haldið á loft menningu Íslands í Kaupmannahöfn. Fyrir það hlýtur Vigdís Finnbogadóttir Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta árið 2011.

Verðlaunin hafa áður hlotið:

2010: Søren Langvad byggingarverkfræðingur.
2009: Erik Skyum-Nielsen bókmenntafræðingur.
2008: Guðjón Friðriksson sagnfræðingur.


Verðlaun Jóns Sigurðssonar 2011
Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, afhendir Verðlaun Jóns Sigurðssonar 2011 frú Vigdísi Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.