28.06.2011 Fundur vestnorrænna þingforseta í Vágum í Færeyjum
Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sækir fund vestnorrænna þingforseta í Vágum í Færeyjum 28. júní 2011, í boði Hergeirs Nielsens, forseta færeyska Lögþingsins. Fundinn sækir einnig Josef Motzfeldt, forseti grænlenska þingsins.
Á fundinum munu þingforsetar m.a. ræða samstarf vestnorrænu þinganna og þau mál sem efst eru á baugi þingunum. Þá munu þingforsetarnir jafnframt ræða samstarfið á vettvangi Vestnorræna ráðsins og starf þingmannanefndar um Hoyvíkursamninginn.
Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, flytur ávarp á hátíðarsamkomu sem var haldin í Alþingishúsinu 17. júní 2011 í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá stofnun Háskóla Íslands í þinghúsinu.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.