29.06.2011 Fundur vestnorrænna þingforseta í Vágum í Færeyjum
Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sótti fund vestnorrænna þingforseta í Vágum í Færeyjum 28. júní 2011, í boði Hergeirs Nielsens, forseta færeyska Lögþingsins. Fundinn sótti einnig Josef Motzfeldt, forseti grænlenska þingsins.
Á fundinum var m.a. rætt um samstarf vestnorrænu þinganna og þau mál sem efst eru á baugi. Einnig var rætt um samstarfið á vettvangi Vestnorræna ráðsins og starf þingmannanefndar um Hoyvíkursamninginn.
Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, Hergeir Nielsen, forseti færeyska Lögþingsins og Josef Motzfeldt, forseti grænlenska þingsins, í Vágum í Færeyjum þar sem fundur vestnorrænna þingforseta var haldinn 28. júní 2011.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.