Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Ragnheiður Ríkharðsdóttir
3. þm. SV, S, RR
Ragnheiður Ríkharðsdóttir

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk
22.08.2011
Fundur forseta þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja 18.-19. ágúst

Árlegur fundur forseta þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja var haldinn í Eistlandi dagana 18.-19. ágúst. Á dagskrá fundarins var m.a. samvinna í tölvuöryggismálum, staða og hlutverk stjórnarandstöðunnar í lýðræðisþingum auk samskipta við Rússland og stækkun Evrópusambandsins. Þingforsetarnir ræddu viðhorf í stjórnmálum á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjum og viðfangsefni þjóðþinganna.

Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, sótti fundinn og var svo viðstödd athöfn í Tallinn í Eistlandi laugardaginn 20. ágúst og Riga í Lettlandi sunnudaginn 21. ágúst í tilefni af því að 20 ár eru liðin síðan ríkin tvö endurheimtu sjálfstæði sitt.

Fundur forseta þjóðþinga Norðurlanda og Eystrasaltsríkja
Norrænir og baltneskir þingforsetar héldu fund í Eistlandi í ágúst 2011 Frá vinstri Per Westerberg, Solvita Aboltina, Ásta R. Jóhannesdóttir, Ene Ergma, Dag Terje Andersen, Thor Pedersen og Eero Heinäluoma.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.