12.09.2011 Heimsókn varaforseta kínverska ráðgjafarþingsins til Íslands 11.-13. september
Varaforseti kínverska ráðgjafarþingsins, Wang Gang, er í heimsókn á Íslandi ásamt sendinefnd dagana 11.-13. september 2011 í boði forseta Alþingis. Wang Gang mun á meðan heimsókn stendur eiga fundi með Ástu R. Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, og Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Þá mun varaforseti kínverska ráðgjafarþingsins einnig heimsækja Ólaf Ragnar Grímsson, forseta Íslands, á Bessastöðum.
Forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, tók á móti varaforseta kínverska ráðgjafarþingsins, Wang Gang, í Alþingishúsinu 13. september 2011.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.