18.09.2011 Utanríkismálanefnd til Finnlands, Eistlands, Lettlands og Danmerkur
Dagana 18.-23. september 2011 ferðast utanríkismálanefnd til Finnlands, Eistlands, Lettlands og Danmerkur. Markmið ferðarinnar er að kynna sér ýmsa þætti er varða aðild ríkjanna að Evrópusambandinu (ESB). Í Helsinki munu nefndarmenn m.a. eiga fund með Alexander Stubb Evrópumálaráðherra, stóru nefnd finnska þingsins, þ.e. sú nefnd sem fer með Evrópumál, og fulltrúum í skógar- og landbúnaðarráðuneytinu. Sérstaklega verður horft til áhrifa ESB-aðildar á finnskan landbúnað auk þess sem staða evrunnar verður rædd. Í Tallinn og Rígu verður fundað með Evrópunefndum og utanríkismálanefndum þinganna og sjónum annars vegar beint að aðildarviðræðum Eistlands og Lettlands við ESB og hins vegar að viðbrögðum við yfirstandandi fjármálakreppu. Í Kaupmannahöfn mun utanríkismálanefnd m.a. eiga fund með fulltrúum í utanríkisráðuneytinu um formennsku Dana í ráðherraráði ESB sem hefst um áramótin.
Af hálfu utanríkismálanefndar taka þátt í fundunum Árni Þór Sigurðsson formaður, Valgerður Bjarnadóttir varaformaður, Ólöf Nordal, Helgi Hjörvar, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Ragnheiður E. Árnadóttir, Björgvin G. Sigurðsson og Birgitta Jónsdóttir.
Formaður stjórnlagaráðs, Salvör Nordal, afhendir forseta Alþingis, Ástu R. Jóhannesdóttur, tillögu stjórnlagaráðs að nýrri stjórnarskrá.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.