26.09.2011 Rannsóknarnefndir Alþingis taka til starfa
Þriðjudaginn 27. september kl. 11 verður haldinn fundur fyrir fjölmiðla um starfsemi rannsóknarnefnda Alþingis. Fréttamannafundurinn er haldinn á Austurströnd 5 á Seltjarnarnesi.
Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, mun kynna starfsemi nefndanna ásamt formönnum þeirra. Formaður nefndar um rannsókn á Íbúðalánasjóði er Sigurður Hallur Stefánsson, fv. héraðsdómari, og formaður nefndar um rannsókn á orsökum og falli sparisjóðanna er Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari.
Á nýafstöðnu þingi samþykkti Alþingi tvær þingsályktanir, annars vegar um rannsókn á Íbúðalánasjóði og hins vegar um rannsókn á aðdraganda og orsökum erfiðleika og falls sparisjóðanna. Jafnframt voru á þinginu samþykkt almenn lög um rannsóknarnefndir en með þeim er Alþingi fengið þýðingarmikið úrræði til þess að sinna eftirlitshlutverki sínu með framkvæmdarvaldinu.
Aðstaða fyrir starfsemi nefndanna verður á Austurströnd 5 á Seltjarnarnesi. Sameiginlegur sími nefndanna er 563 0210.
Föstudaginn 13. apríl 2012 afhjúpaði forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, málverk af Sólveigu Pétursdóttur, fyrrverandi forseta Alþingis, í Alþingishúsinu. Sólveig Pétursdóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir og listamaðurinn, Stephen Lárus Stephen við málverkið af Sólveigu í efrideildarsal.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.