27.09.2011 Rannsóknarnefndir Alþingis taka til starfa
Á nýafstöðnu þingi samþykkti Alþingi tvær þingsályktanir, annars vegar um rannsókn á Íbúðalánasjóði og hins vegar um rannsókn á aðdraganda og orsökum erfiðleika og falls sparisjóðanna. Jafnframt voru á þinginu samþykkt almenn lög um rannsóknarnefndir en með þeim er Alþingi fengið þýðingarmikið úrræði til þess að sinna eftirlitshlutverki sínu með framkvæmdarvaldinu. Á grundvelli þeirra hefur forseti Alþingis, að undangengnu samráði innan Alþingis, skipað tvær rannsóknarnefndir til þess að sinna þeim rannsóknum sem þingið hefur samþykkt að hefja.
Formaður nefndar um rannsókn á Íbúðalánasjóði er Sigurður Hallur Stefánsson, fv. héraðsdómari. Með honum í nefndinni eru Kirstín Flygenring hagfræðingur og Jón Þorvaldur Heiðarsson, lektor við viðskiptafræðideild Háskólans á Akureyri. Er nefndinni ætlað að rannsaka starfsemi sjóðsins frá aðdraganda breytinganna á fjármögnun og lánareglum hans, sem hrundið var í framkvæmd á árinu 2004, og til ársloka 2010. Enn fremur á nefndin að meta áhrifin af þessum breytingum, stefnu sjóðsins og einstökum ákvörðunum á þessum tíma á fjárhag sjóðsins og fasteignamarkaðinn í heild sinni. Þá er nefndinni ætlað að meta áhrif starfsemi Íbúðalánasjóðs á stjórn efnahagsmála og loks að leggja mat á hversu vel sjóðnum hefur tekist að sinna lögbundnu hlutverki sínu á tímabilinu, sbr. þingsályktun Alþingis frá 17. desember 2010.
Formaður nefndar um rannsókn á orsökum og falli sparisjóðanna er Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari. Með henni í nefndinni eru Tinna Finnbogadóttir hagfræðingur og Bjarni Fr. Karlsson, lektor við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands. Er nefndinni ætlað að leita sannleikans um aðdraganda og orsök rekstrarerfiðleika og gjaldþrots sparisjóðanna á Íslandi, sbr. þingsályktun Alþingis frá 10. júní 2011.
Guðrún Aradóttir viðskiptafræðingur hefur verið ráðin til þess að liðsinna nefndunum í daglegum störfum þeirra.
Nefndarmenn hafa undanfarna daga unnið að því, með aðstoð starfsfólks Alþingis, að koma sér upp aðstöðu fyrir starfsemi nefndanna sem verður að Austurströnd 5 á Seltjarnarnesi. Sameiginlegur sími nefndanna er 563 0210. Unnið er að því að setja upp vefsíðu rannsóknarnefndanna.
Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, kynnti starfsemi tveggja rannsóknarnefnda Alþingis, sem eru að taka til starfa, ásamt formönnum þeirra þann 27. september 2011. Formaður nefndar um rannsókn á Íbúðalánasjóði er Sigurður Hallur Stefánsson, fv. héraðsdómari og formaður nefndar um rannsókn á orsökum og falli sparisjóðanna er Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.