28.09.2011 Skýrsla nefndar Alþingis um eflingu græna hagkerfisins kynnt 29. september
Nefnd Alþingis um eflingu græna hagkerfisins kynnir í dag, fimmtudaginn 29. september, niðurstöður af vinnu sinni undanfarna 12 mánuði.
Nefndin var skipuð fulltrúum allra þingflokka 6. september 2010 og leggur fram á morgun skýrslu með tillögum um hvernig megi örva umhverfisvæna atvinnusköpun á Íslandi.
Skýrslan verður kynnt fjölmiðlamönnum á fundi kl. 13.30 á nefndasviði Alþingis, Austurstræti 8-10 (gengið inn frá Austurvelli).
Nánari upplýsingar veitir: Skúli Helgason Formaður nefndar Alþingis um eflingu græna hagkerfisins
Upprunalegir litir og kalkskreytingar í lofti prýða þingsalinn.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.