05.10.2011 Fundur sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og Evrópusambandsins
Þriðji fundur sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og Evrópusambandsins (ESB) fer fram í Evrópuþinginu í Brussel 5. október.
Á fundinum verður sérstök umræða um samskipti Íslands og ESB með þátttöku Alexöndru Cas Granje frá skrifstofu stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB, Jan Borkowski, aðstoðarutanríkisráðherra Póllands, sem fer með formennsku í ráðherraráði ESB, og Stefáns Hauks Jóhannessonar, aðalsamningamanns Íslands í yfirstandandi aðildarviðræðum.
Þá verður á fundinum fjallað um stöðu efnahagsmála, þróun Schengen-samstarfsins, endurskoðun sameiginlegrar fiskveiðistefnu ESB og stefnumótun um málefni norðurslóða.
Af hálfu Alþingis taka eftirtaldir þingmenn þátt í fundinum: Árni Þór Sigurðsson, formaður sendinefndar, Valgerður Bjarnadóttir, varaformaður, Birgitta Jónsdóttir, Björgvin G. Sigurðsson, Einar K. Guðfinnsson, Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, Jónína Rós Guðmundsdóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Þorgerður K. Gunnarsdóttir.
Forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, opnaði Evrópuvefinn, upplýsingaveitu um Evrópusambandið og Evrópumál á Háskólatorgi HÍ 23. júní 2011.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.