06.10.2011 Þingforsetar smáríkja Evrópu funda á Möltu 6.-7. október
Forsetar þjóðþinga evrópskra smáríkja funda á Möltu dagana 6.-7. október 2011. Fundurinn er árlegur samráðsvettvangur þjóðþinga evrópskra smáríkja sem eru aðilar að Evrópuráðinu með íbúafjölda undir einni milljón.
Auk Ástu R. Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, sækja fulltrúar þjóðþinga Andorra, Kýpur, Liechtenstein, Lúxemborgar, Möltu, Mónakó, San Marínó og Svartfjallalands fundinn.
Á fundinum munu þingforsetarnir m.a. ræða um störf þinganna, upplýsingamiðlun og alþjóðasamstarf þjóðþinga.
Frá fundi þingforseta smáríkja Evrópu á Möltu 6.-7. október 2011, Vicenç Mateu Zamora, forseti þjóðþings Andorra, Teodoro Lonfernini, þingmaður frá San Marínó, Alessandro Mancini, þingmaður frá San Marínó, Ranko Krivokapic, forseti þjóðþings Svartfjallalands, Michael Frendo forseti þjóðþings Möltu, Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, Jean-François Robillion, forseti þjóðþings Mónakó, Arthur Brunhart forseti þjóðþings Liechtenstein og Félix Braz, þingmaður frá Lúxemborg.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.