Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Össur Skarphéðinsson
4. þm. RN, Sf, ÖS
Össur Skarphéðinsson

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk
06.10.2011
Þriðji fundur sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og Evrópusambandsins

Þriðji fundur sameiginlegrar þingmannanefndar Íslands og Evrópusambandsins var haldinn í Brussel í dag.

Fundinum var stýrt sameiginlega af Pat the Cope Gallagher (Evrópuþinginu, ALDE-flokkahópnum, Írlandi) og Árna Þór Sigurðssyni (Vinstri grænum).

Sameiginlega þingmannanefndin ræddi um samskipti Íslands og ESB, sér í lagi um aðildarviðræðuferlið, með þátttöku:
Jan Borkowski, aðstoðarutanríkisráðherra Póllands, sem fer með formennsku í ráðherraráði ESB, Alexöndru Cas Granje frá skrifstofu stækkunarmála í framkvæmdastjórn ESB og Stefáns Hauks Jóhannessonar, aðalsamningamanns Íslands í yfirstandandi aðildarviðræðum.

Í pallborðsumræðum var lögð áhersla á að á ríkjaráðstefnunni sem haldin var í júní voru fjórir samningskaflar opnaðir og af þeim var tveimur lokað samdægurs. Hafnar verði viðræður um fleiri kafla til viðbótar á þeim ríkjaráðstefnum sem ráðgerðar eru 19. október og 12. desember nk.

Til viðbótar fjallaði sameiginlega þingmannanefndin um eftirfarandi efni á fundi sínum:
  • Efnahagsstjórn og fjármálakreppan: Vandamálin á Evrusvæðinu sem nú eru í deiglunni voru rædd ásamt efnahagsbata á Íslandi.

  • Þróun Schengen-samstarfsins: Yfirstandandi breytingar á Schengen-svæðinu voru ræddar ásamt gagnrýni sem komið hefur fram í garð vissra aðildarríkja ESB vegna endurupptöku landamæragæslu og takmarkana á frjálsri för.

  • Endurskoðun sameiginlegrar fiskveiðistefnu ESB: Lögð var áhersla á þörfina á því að tryggja sjálfbærni fiskveiða og stöðva brottkast auk þess sem stuðningur kom fram við aukna svæðaskiptingu í fiskveiðistjórnun.

  • Norðurslóðir: stefnumótun Íslands og ESB um málefni norðurslóða: Ályktun Alþingis um stefnu Íslands í málefnum norðurslóða frá því í mars var rædd, ásamt stefnumörkun ESB um málefni svæðisins. Stuðningur kom fram við áheyrnaraðild ESB að Norðurskautsráðinu.

Ráðgert er að fjórði fundur sameiginlegu þingmannanefndarinnar verði haldinn dagana 2.-4. apríl nk. á Íslandi.

Þingmenn Evrópuþingsins:
Pat the Cope Gallagher (ALDE) Írlandi,
Anna Hedh (S-D) Svíþjóð,
Thomas Ulmer (EPP) Þýskalandi,
Petru Luhan (EPP) Rúmeníu,
Zuzana Brzobohatá (S-D) Tékklandi,
Indrek Tarand (Greens/EFA) Eistlandi,
Diana Wallis (ALDE) Bretlandi.


Alþingismenn:
Árni Þór Sigurðsson, form. (Vinstri hreyfingin - grænt framboð),
Valgerður Bjarnadóttir, varaform. (Samfylking),
Einar K. Guðfinnsson (Sjálfstæðisflokkur),
Þorgerður K. Gunnarsdóttir (Sjálfstæðisflokkur),
Birgitta Jónsdóttir (Hreyfingin),
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir (Vinstri hreyfingin - grænt framboð),
Jónína Rós Guðmundsdóttir (Samfylking),
Björgvin G. Sigurðsson (Samfylking),
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (Framsóknarflokkur).

(Skammstafanir flokkahópa á Evrópuþinginu:
EPP [Kristilegir demókratar] European People's Party Christian-Democratic Group,
S&D[Jafnaðarmenn] Progressive Alliance of Socialists and Democrats,
ALDE/ADLE [Frjálslyndir] Alliance of Liberals and Democrats for Europe,
Greens/EFA [Grænir og óháðir]Greens/European Free Alliance.)



Hátíðarsamkoma í Alþingishúsinu
Þess var minnst með hátíðarsamkomu í Alþingishúsinu þann 8. júlí 2012 að þá voru liðin 90 ár frá því að Ingibjörg H. Bjarnason var fyrst kvenna kosin til setu á Alþingi.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.