Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Unnur Brá Konráðsdóttir
4. þm. SU, S, UBK
Unnur Brá Konráðsdóttir

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk
17.10.2011
Gestafundur í utanríkismálanefnd opinn fulltrúum fjölmiðla þriðjudaginn 18. október

Fundur opinn fréttamönnum verður haldinn í utanríkismálanefnd Alþingis þriðjudaginn 18. október 2011 kl. 12:00. Gestur fundarins verður Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra. Rætt verður um þau mál sem ráðherra hyggst leggja fram á yfirstandandi þingi.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fréttamönnum meðan húsrúm leyfir.

Ekki verður um beina útsendingu að ræða frá fundinum.

Vert er að geta þess að þessi fundur verður sá fyrsti í 83 ára sögu utanríkismálanefndar sem opinn er fréttamönnum og jafnframt sá fyrsti með því lagi sem haldinn er í þingnefnd (gestafundur), skv. nýju ákvæði 2. mgr. 19. gr. laga um þingsköp Alþingis.



Fundur í utanríkismálanefnd opinn fréttamönnum
Utanríkismálanefnd hélt fund með utanríkismálaráðherra þann 18. október 2011. Fundurinn var opinn fréttamönnum. Fundurinn var sá fyrsti í 83 ára sögu utanríkismálanefndar sem opinn er fréttamönnum og jafnframt sá fyrsti með því lagi sem haldinn er í þingnefnd (gestafundur), skv. nýju ákvæði 2. mgr. 19. gr.laga um þingsköp Alþingis.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.