20.10.2011 Gestafundur, dagskrárliður 4 á fundi atvinnuveganefndar, málefni álvers á Bakka, verður opinn fréttamönnum
Liður númer 4 á dagskrá fundar atvinnumálanefndar, málefni álvers á Bakka við Húsavík, sem hófst 20. október kl. 8.30 verður opinn fréttamönnum.
Gestir fundarins eru Hörður Arnarson frá Landsvirkjun, Bergur Elías Ágústsson frá Norðurþingi, Guðrún María Valgeirsdóttir frá Skútustaðahreppi og Tryggvi Harðarson frá Þingeyjarsveit.
Þess ber að geta að Bergur Elías Ágústsson, Guðrún María Valgeirsdóttir og Tryggvi Harðarson taka þátt í fundinum í gegnum síma.
Fundurinn er haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fréttamönnum meðan húsrúm leyfir.
Ekki verður um beina útsendingu að ræða frá fundinum.
Gestafundir opnir fjölmiðlamönnum eru haldnir skv. nýju ákvæði 2. mgr. 19. gr. laga um þingsköp Alþingis.
Formaður og varaformaður utanríkismálanefndar, Árni Þór Sigurðsson og Valgerður Bjarnadóttir, tóku á móti utanríkisráðherra Litháens, Vygaudas Usackas, 25. júlí 2009 í Alþingishúsinu.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.