Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
1. þm. NA, F, SDG
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk
20.10.2011
Framkvæmdastjóri stækkunar- og nágrannastefnu Evrópusambandsins á fundi með forseta Alþingis og fulltrúum þingflokka

Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, átti í dag fund með Stefan Füle, framkvæmdastjóra stækkunar- og nágrannastefnu ESB, ásamt fulltrúum þingflokka á Alþingi.

Af hálfu þingflokka sóttu fundinn Sigmundur Ernir Rúnarsson, Bjarni Benediktsson, Álfheiður Ingadóttir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Birgitta Jónsdóttir.

Ræddu þau m.a. um framvindu aðildarviðræðna, stöðu mála á evrusvæðinu og mikilvægi þess að gæta hagsmuna íslensks sjávarútvegs og landbúnaðar í viðræðunum. Lagði Füle áherslu á hlutverk Alþingis í viðræðunum og sagði mikilvægi þjóðþinga í Evrópusamvinnunni hafa aukist til muna með Lissabonsáttmálanum.

Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, átti fund með Stefan Füle, framkvæmdastjóra stækkunar- og nágrannastefnu ESB, ásamt fulltrúum þingflokka á Alþingi 20. október 2011. Af hálfu þingflokka sóttu fundinn Álfheiður Ingadóttir, Sigmundur Ernir Rúnarsson, Bjarni Benediktsson, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Birgitta Jónsdóttir.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.