31.10.2011 Gestafundur, dagskrárliður 2, skýrsla eftirlitsnefndar með framkvæmd sértækrar skuldaaðlögunar, á fundi velferðarnefndar 2. nóvember opinn fréttamönnum
Á fundi velferðarnefndar Alþingis miðvikudaginn 2. nóvember 2011 kl. 9.10-10.40 verður 2. dagskrárliður fundarins opinn fulltrúum fjölmiðla. Til umræðu undir þeim dagskrárlið verður skýrsla eftirlitsnefndar með framkvæmd sértækrar skuldaaðlögunar og gestir nefndarinnar verða nefndarmenn eftirlitsnefndarinnar: Maria Thejll, formaður nefndarinnar, og Þórólfur Matthíasson.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fjölmiðlamönnum meðan húsrúm leyfir.
Ekki verður um beina útsendingu að ræða frá fundinum.
Gestafundir opnir fjölmiðlamönnum eru haldnir skv. nýju ákvæði 2. mgr. 19. gr. laga um þingsköp Alþingis.
Forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, opnaði Evrópuvefinn, upplýsingaveitu um Evrópusambandið og Evrópumál á Háskólatorgi HÍ 23. júní 2011.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.