02.11.2011 Gestafundur, dagskrárliður 2, á fundi í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd 3. nóvember opinn fréttamönnum
Á fundi stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis fimmtudaginn 3. nóvember 2011 verður dagskrárliður 2, ábending Ríkisendurskoðunar um innkaup löggæslustofnana, opinn fréttamönnum. Fundurinn hefst kl. 9.00. Gestir fundarins verða innanríkisráðherra, Ögmundur Jónasson, og embættismenn frá innanríkisráðuneyti, ríkislögreglustjóra og Ríkisendurskoðun.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fjölmiðlamönnum meðan húsrúm leyfir.
Ekki verður um að ræða beina útsendingu frá fundinum.
Gestafundir opnir fjölmiðlamönnum eru haldnir skv. nýju ákvæði 2. mgr. 19. gr. laga um þingsköp Alþingis.
Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, flytur ávarp á hátíðarsamkomu sem var haldin í Alþingishúsinu 17. júní 2011 í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá stofnun Háskóla Íslands í þinghúsinu.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.