Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
1. þm. NA, F, SDG
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk
03.11.2011
Opinn fundur í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd með fulltrúum stjórnlagaráðs og stjórnlaganefndar 4. nóvember 2011

Opinn fundur verður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis með fulltrúum stjórnlagaráðs og stjórnlaganefndar föstudaginn 4. nóvember 2011 kl. 9.30-11.00.

Rætt verður um skýrslu forsætisnefndar um tillögur stjórnlagaráðs um breytingar á stjórnarskrá Íslands og tillögu til þingsályktunar um meðferð frumvarps stjórnlagaráðs til stjórnarskipunarlaga.


Gestir verða Guðrún Pétursdóttir, formaður stjórnlaganefndar, og
Salvör Nordal, formaður stjórnlagaráðs, og Ari Teitsson, varaformaður stjórnlagaráðs.

Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.

Bein útsending verður frá fundinum í ríkissjónvarpinu, á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.


Málverk af Jóni Sigurðssyni eftir August Schiött
Á vefsíðu sem sett var upp í tilefni 200 ára minningarafmælis Jóns Sigurðssonar er m.a. tímaás um lífshlaup hans.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.