22.11.2011 Opinn fundur í utanríkismálanefnd og atvinnuveganefnd með utanríkisráðherra 23. nóvember - bein útsending
Utanríkismálanefnd og atvinnuveganefnd halda sameiginlegan opinn fund miðvikudaginn 23. nóvember kl. 15. Gestur fundarins verður Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra. Efni fundarins verður staða viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu, einkum er varðar samningskafla um sjávarútvegs- og landbúnaðarmál.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.
Þingmenn í þingmannanefnd til að fjalla um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis funduðu með nefndarmönnum í rannsóknarnefnd Alþingis þann 13. apríl 2010.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.