25.11.2011 Opinn fundur í efnahags- og viðskiptanefnd 28. nóvember - bein útsending
Opinn fundur verður í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis mánudaginn 28. nóvember kl. 9.30. Rætt verður um störf peningastefnunefndar sbr. 3. mgr. 24. gr. laga um Seðlabanka Íslands.
Gestir fundarins verða Már Guðmundsson seðlabankastjóri, Arnór Sighvatsson aðstoðarseðlabankastjóri og Rannveig Sigurðardóttir.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Bein útsending verður frá fundinum í ríkissjónvarpinu, á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.
Fyrrverandi forsetar Alþingis heimsóttu Alþingishúsið þann 21. febrúar 2011 í boði forseta Alþingis, Ástu R. Jóhannesdóttur.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.