22.02.2012 Fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis 23. febrúar verður opinn fréttamönnum undir 2. dagskrárlið
Fundur stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis 23. febrúar kl. 8.30 verður opinn fréttamönnum meðan 2. dagskrárliður, afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, verður ræddur.
Gestir á fundinum verða Þórhallur Vilhjálmsson aðallögfræðingur Alþingis og Páll Þórhallsson frá forsætisráðuneytinu.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.