22.03.2012 Úthlutun fræðimannsíbúðar Húss Jóns Sigurðssonar 2012-2013
Úthlutunarnefnd fræðimannsíbúðar, samkvæmt reglum um Hús Jóns Sigurðssonar í Kaupmannahöfn, hefur lokið störfum og úthlutað íbúðinni frá ágústlokum 2012 til ágústloka 2013.
Í nefndinni eiga sæti Anna Agnarsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands, formaður, Ágúst Einarsson, prófessor og fyrrverandi rektor við Háskólann á Bifröst, og Kristinn Ólason, fyrrverandi rektor Skálholtsskóla. Ritari nefndarinnar er Jörundur Kristjánsson, alþjóðaritari á skrifstofu forseta Alþingis.
Alls bárust nefndinni að þessu sinni 39 umsóknir. Sjö fræðimenn fá afnot af íbúðinni, sem hér segir: Erla Erlendsdóttir, til að vinna verkefni um áhrif spænskrar tungu á Norðurlandamálin og þýðingarsögu Evrópu. Guðmundur Lúther Hafsteinsson, til að vinna verkefni um dönsk áhrif á innra fyrirkomulag kirkjubygginga á Íslandi á 19. öld. Helgi Torfason, til að vinna verkefni um upphaf náttúruminjasafns Hins íslenska náttúrufræðifélags 1887 í Kaupmannahöfn. Hrefna Róbertsdóttir, til að vinna verkefni um þéttbýlishverfi og byggðamenningu á Íslandi á árnýöld. Margrét Hallgrímsdóttir, til að vinna að verkefni í tengslum við 150 ára afmæli Þjóðminjasafns Íslands í samvinnu við Þjóðminjasafn Dana í tengslum við þessi tímamót. Ólafur Ásgeirsson, til að vinna að afritun verslunarbóka frá 18. öld. Ragnhildur Helgadóttir, til að vinna að verkefni um stjórnskipun í mótun og áhrif stjórnskipunarþróunar ESB á danska stjórnskipun.
Fræðimannsíbúðin í Kaupmannahöfn, tengd nafni Jóns Sigurðssonar, er skammt frá Jónshúsi, í Sankt Pauls Gade 70. Fræðimaður hefur vinnustofu í Jónshúsi.
Alþingishúsið var opið almenningi 17. júní 2011 í tilefni af 100 ára afmæli Háskóla Íslands, sem stofnaður var í þinghúsinu, einnig var 200 ára afmælis Jóns Sigurðssonar forseta minnst. Rúmlega 3000 gestir komu í heimsókn.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.