22.03.2012 Opinn fundur í efnahags- og viðskiptanefnd með peningastefnunefnd 26. mars – bein útsending
Opinn fundur verður haldinn í efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis mánudaginn 26. mars 2012 kl. 9.30 til 11.00. Rætt verður um störf peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands.
Gestir fundarins verða Már Guðmundsson seðlabankastjóri, Arnór Sighvatsson og Gylfi Zoega.
Efni fundarins varðar störf peningastefnunefndar, sbr. 3. mgr. 24. gr. laga um Seðlabanka Íslands.
Fundurinn verður haldinn í húsnæði nefndasviðs Alþingis í Austurstræti 8-10 og verður opinn fulltrúum fjölmiðla og almenningi meðan húsrúm leyfir.
Bein útsending verður frá fundinum á vef Alþingis og á sjónvarpsrás Alþingis á dreifikerfum Símans og Vodafone.
Fundurinn verður haldinn samkvæmt reglum um opna fundi fastanefnda Alþingis, sjá reglur.
Þingsetning hefst með guðsþjónustu í Dómkirkjunni. Forseti Íslands, biskupinn yfir Íslandi, forseti Alþingis, ráðherrar og alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.