Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Birgitta Jónsdóttir
12. þm. SV, P, BirgJ
Birgitta Jónsdóttir

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk
13.04.2012
Málverk af Sólveigu Pétursdóttur, fyrrverandi forseta Alþingis, afhjúpað í Alþingishúsinu

Í dag, föstudaginn 13. apríl, afhjúpaði forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, málverk af Sólveigu Pétursdóttur, fyrrverandi forseta Alþingis, að viðstöddum alþingismönnum, fjölskyldu Sólveigar, fyrrum samþingmönnum og fleiri gestum.

Stephen Lárus Stephen listmálari málaði myndina og hefur henni verið komið fyrir í efrideildarsal.

Sólveig Pétursdóttir var forseti Alþingis 2005-2007. Hún sat á Alþingi í 16 ár, frá febrúar 1991 til vors 2007. Hún hafði áður setið nokkur skipti á Alþingi sem varamaður, en sem slíkur settist hún fyrst á þing í október 1987. Sólveig gegndi embætti dóms- og kirkjumálaráðherra 1999-2003.




Málverk af Sólveigu Pétursdóttur, fyrrverandi forseta Alþingis, afhjúpað
Föstudaginn 13. apríl 2012 afhjúpaði forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, málverk af Sólveigu Pétursdóttur, fyrrverandi forseta Alþingis, í Alþingishúsinu. Sólveig Pétursdóttir, Ásta R. Jóhannesdóttir og listamaðurinn, Stephen Lárus Stephen við málverkið af Sólveigu í efrideildarsal.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.