Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Gunnar Bragi Sveinsson
1. þm. NV, F, GBS
Gunnar Bragi Sveinsson

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk
18.04.2012
Hátíð Jóns Sigurðssonar í Jónshúsi í Kaupmannahöfn 19. apríl 2012

Hátíð Jóns Sigurðssonar verður haldin í Jónshúsi í Kaupmannhöfn á sumardaginn fyrsta, 19. apríl 2012, kl. 16.30. Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta verða afhent af því tilefni. Markmiðið með hátíðinni er að heiðra minningu Jóns Sigurðssonar og halda á lofti verkum hans og hugsjónum.

Alþingi veitir Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta í minningu starfa hans í þágu Íslands og Íslendinga. Þau hlýtur hverju sinni einstaklingur sem hefur unnið verk er tengjast hugsjónum og störfum Jóns Sigurðssonar. Þessi verk geta verið á sviði fræðistarfa, viðskipta eða mennta- og menningarmála.

Nánari upplýsingar um dagskrá hátíðarinnar er að finna á vef Jónshúss.

Helga Guðrún Jónasdóttir flytur erindi á hátíðarsamkomu
Helga Guðrún Jónasdóttir flutti erindi um stjórnmálaþátttöku kvenna á hátíðarsamkomu sem haldin var í Alþingishúsinu 8. júlí 2012.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.