Á forsíðu
Þingmál
Þingmenn
Þingfundir
Ræður

Lagasafn
Þingnefndir
Alþjóðastarf
Bein útsending



Í nærmynd
Guðlaugur Þór Þórðarson
7. þm. RS, S, GÞÞ
Guðlaugur Þór Þórðarson

  Um AlþingiSkrifstofaNetföngÞjónustaValin vefföngFjölmiðlarEfnisyfirlit English    Dansk
19.04.2012
Dr. phil. Pétur M. Jónasson, vatnalíffræðingur og prófessor emeritus, hlýtur Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta

Hátíð Jóns Sigurðssonar var haldin í Jónshúsi í Kaupmannhöfn í gær, á sumardaginn fyrsta, 19. apríl 2012. Markmiðið með hátíðinni er að heiðra minningu Jóns Sigurðssonar og halda á loft verkum hans og hugsjónum. Stjórn húss Jóns Sigurðssonar hefur umsjón með hátíðinni með fulltingi forseta Alþingis og forsætisnefndar.

Ásta R. Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, afhenti Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta. Alþingi veitir verðlaunin í minningu starfa Jóns forseta í þágu Íslands og Íslendinga.

Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta árið 2012 hlýtur dr. phil. Pétur M. Jónasson, vatnalíffræðingur og prófessor emeritus. Hann hefur með framúrskarandi fræðistörfum á sviði vatnalíffræði í Danmörku og á Íslandi lagt fram mikilvægan skerf til að styrkja vísindasamstarf þjóðanna. Jafnframt var Pétur um árabil í forustu Hins íslenska fræðafélags í Kaupmannahöfn sem stóð að merkum útgáfum í forsetatíð hans. Fyrir það hlýtur hann Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta árið 2012.

Verðlaunin hafa áður hlotið:

2011: Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands.
2010: Søren Langvad byggingarverkfræðingur.
2009: Erik Skyum-Nielsen bókmenntafræðingur.
2008: Guðjón Friðriksson sagnfræðingur.



Verðlaun Jóns Sigurðssonar
Forseti Alþingis, Ásta R. Jóhannesdóttir, afhenti Verðlaun Jóns Sigurðssonar forseta árið 2012 dr. phil. Pétri M. Jónassyni, vatnalíffræðingi og prófessor emeritus.


Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.