03.05.2012 Fundur þingmannanefndar EES á Akureyri 3.-4. maí
Þingmannanefnd EES kemur saman til 38. fundar síns á Akureyri 3.-4. maí. Helstu mál fundarins eru framkvæmd EES-samningsins, úttektir einstakra ríkja og framkvæmdastjórnar ESB á EES-samningnum, og Hvítbók um samgöngumál í Evrópu. Auk þess mun þingmannanefndin heimsækja Háskólann á Akureyri og Stofnun Vilhjálms Stefánssonar.
Af hálfu Íslandsdeildar þingmannanefnda EFTA og EES sækja fundinn þau Árni Þór Sigurðsson formaður, Skúli Helgason, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, Sigmundur Ernir Rúnarsson og Þorgerður K. Gunnarsdóttir.
Kristín Ástgeirsdóttir flutti ávarp um Ingibjörgu H. Bjarnason á hátíðarsamkomu sem haldin var í Alþingishúsinu 8. júlí 2012.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.