NATO-þingið kemur saman til vorfunda í Tallinn 25.–28. maí 2012. Þar verða tekin til umræðu málefni sem eru ofarlega á baugi innan Atlantshafsbandalagsins, t.d. aðgerðir NATO í Afganistan og ástandið í Norður-Afríku og Miðausturlöndum. Einnig verður rætt um niðurstöður leiðtogafundar NATO sem haldinn var í Chicago 21.-22. maí síðastliðnum.
Af hálfu Íslandsdeildar NATO-þingsins sækja fundinn Björgvin G. Sigurðsson formaður og Birgitta Jónsdóttir.
Alþingishúsið var opið almenningi 17. júní 2011 í tilefni af 100 ára afmæli Háskóla Íslands einnig var 200 ára afmælis Jóns Sigurðssonar forseta minnst.
Skrifstofa Alþingis - 150 Reykjavík - Sími 563 0500 - Fax 563 0550
Alþingishúsið stendur við Austurvöll
Öllum fyrirspurnum, ábendingum og tillögum
um vef Alþingis skal beint til ritstjóra vefs Alþingis.